Hið árlega Ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið föstudaginn 10. febrúar en þá fer fram Safnanótt. Þetta er fimmta Ljóðaslammi í röðinni og að þessu sinni er þemað myrkur, en þema Safnanætur er magnað myrkur.

Ljóðaslammið ætlað ungu fólki frá 15-25 ára og er skilgreint sem einskonar ljóðagjörningur og er áherslan ekki síður lögð á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms.

Dagskrár síðustu fjögurra ára hafa einkennst af hugmyndauðgi, krafti og frumleika en fyrri þemu voru spenna, hrollur, væmni og sjálfstæði. Eina krafan hefur verið sú að flutt væri frumsamið ljóð eða stuttur prósi og hafa þátttakendur sýnt dansverk, ör-leikþætti, rapp, fólk hefur sungið og leiklesið ljóð með myndefni svo eitthvað sé nefnt.

Fimm manna dómnefnd kemur svo til með að velja þrjú bestu atriðin og verða upptökur af þeim sett á netið.

Skráningarfrestur er til föstudagsins 27. janúar 2012 og má sjá allar nánari upplýsingar á ljodaslamm.is