Plötusnúðurinn og skemmtanahaldarinn góðkunni Óli Geir gerði fyrr á árinu nokkur mix sem eiga að henta þér fullkomnlega í ræktina.
Síðasta mix kom út í mars en Óli hefur hreinlega ekki haft tíma til að gera nýtt mix undanfarið vegna mikilla anna.

Hér er Óli hinsvegar mættur með glænýtt mix fyrir júní mánuð og stefnir hann á að ná að gera nýtt mix í hverjum mánuði.

Óli lét hanna sérstaka viðbót á facebook síðu sinni þar sem hægt er að hlaða mixinu niður frítt, en þú kemst á hana með því að smella HÉR.