Tino Coury er 23 ára upprennandi söngvari sem kemur frá Pittsburgh í Pensilvaníu.
Hann sló fyrst í gegn árið 2010 með laginu Diary en vinsældir hans döluðu jafnt og þétt eftir það og hefur hann gefið út afar lítið af efni síðan þá.

Hér er Coury hinsvegar mættur með splunkunýtt lag sem heitir Drink My Love Away og er það ansi líklegt til vinsælda og verður gaman að sjá hvort að það komi honum aftur á toppinn eftir langa fjarveru.