Hún býr í Stykkishólmi og er aðeins fjórtán ára gömul. Klara Sól Sigurðardóttir er afar efnileg söngkona sem hefur verið að koma með hvert lagið á fætur öðru en það nýjasta er cover af laginu Hey, Soul Sister sem hljómsveitin Train gerði upphaflega.

Klara hóf söngnám sitt aðeins átta ára gömul og þá fyrst í Danmörku og síðan hér á Íslandi en hún er á leiðinni í söngskóla í Bretlandi á næstunni.

„Ég hef mikinn áhuga á söng og er draumur minn að ná sem lengst í honum,“ sagði Klara Sól í samtali við Ný Tónlist, en hún er afar ánægð með þann árángur sem hún hefur náð nú þegar en hún stefnir en lengra.

Það var Hafþór Smári sem tók lagið upp en myndbandið er unnið af Benedikt Óskarssyni.