Hin 24 ára gamla söngkona Adele hefur heldur betur náð langt á tónlistarferli sínum sem hefur spannað sex ár.
Hér er hún mætt með titillag 23. James Bond myndarinnar en myndin sem heitir líkt og lagið, Skyfall verður frumsýnd hér á landi þann 26. október næstkomandi og bíða eflaust margir Bond áhugamenn spenntir  eftir komu myndarinnar.