Glænýtt myndband við þetta grípandi lag frá hinum 23 ára gamla William Sinclair eða Willy Moon eins og hann kallar sig.

Lagið sem nefnist Yeah Yeah er það fimmta sem þessi Nýsjálenski söngvari sendir frá sér, en hann flutti til London þegar hann var sautján ára gamall og hófst tónlistarferill hans fjórum árum síðar og er það nokkuð ljóst að það á mikið af spennandi efni eftir að koma frá þessum unga tónlistarmanni á næstunni.