Hér er á ferðinni ansi litríkt myndband við aðra smáskífuna af plötunni Back 2 Life sem átti upphaflega að koma út í júlí á þessu ári en útgáfa hennar hefur þó eitthvað dregist.

Í laginu sem nefnist Rum And Raybans hefur Sean Kingston fengið hina 19 ára gömlu Cher Lloyd með sér í lið en hún hefur verið ansi vinsæl upp á síðkastið og þá einkum fyrir lagið sitt Oath.