Hið sívinsæla jólalag All I Want For Christmas Is You kom upphaflega út árið 1944 í flutningi hinnar 40 ára gömlu Mariah Carey sem ættuð er frá Bandaríkjunum.

Hún kom fram á dögunum í spjallþætti Jimmy Fallon á NBC sjónvarpstöðinni og fyrir þáttinn tóku þau Mariah, Jimmy og hljómsveit þáttarins, The Roots fram hljóðfæri sem finna má í grunnskólum og fluttu órafmagnaða útgáfu af þessu ástæla jólalagi sem allir ættu að kannast við.