Daft Punk - Get Lucky ásmat Pharrell WilliamsFranska elektró dúóið Daft Punk var stofnað árið 1993 af þeim Thomas Bangalter og Guy-Manuel en þeir nutu fljótt mikilla vinsælda og eiga enn þann dag í gag stóran aðdáendahóp.

Ný plata er á leiðinni frá þeim félögum  í maí og ber hún nafnið Random Access Memories og er lagið Get Lucky fyrsta smáskífan af plötuni.
Einhverjir hafa eflaust misskilið efni textans en söngvari lagsins, Pharrell Williams vill benda á það að það tengist kynlífi ekki á neinn hátt.