Jessie J - WILD ásamt Big Sean og Dizzee RascalHin 25 ára gamla söngkona Jessie J hóf störf sín í heimi tónlistarinnar þegar hún byrjaði að semja lög fyrir aðra tónlistarmenn en þar á meðal voru þau Chris Brown og Miley Cyrus.

Nú er hún hinsvegar á leiðinni með sína aðra plötu sem kemur út síðar á þessu ári, en lagið Wild er fyrsta smáskífan af plötunni og eru það rappararnir Big Sean og Dizzee Rascal sem eru með henni í laginu.