Sensato - Booty Booty ásamt PitbullBandaríkjamaðurinn Sensato Del Patio eða bara Sensato eins og hann kallar sig komst fyrst í sviðsljósið árið 2009 þegar hann sendi frá sér lagið Watagatapitusberry ásamt þeim Lil Jon, Black Point, El Cata og Pitbull, en áður fyrr naut hann aðeins vinsælda á meðal lítils hóps af fólki.

Nú hafa Sensato og Pitbull aftur sent frá sér lag í sameiningu, en myndbandið við lagið sem nefnist Booty Booty er afar einhæft og hefur verið gagnrýnt á meðal margra fyrir innihald sitt, en það hefur að geyma andlit söngvarana á kvenmannsrössum.