unnureggertsHina 21 árs Unni Eggertsdóttur ættu flestir að þekkja, ekki bara útaf stórglæsilegum söng – heldur einnig sem Sollu Stirðu úr þáttunum Latibær eða Lazy Town sem eru víðsþekktir.

Unnur, sem hefur verið í nokkrum söngleikjum í Verzlunarskóla Íslands, tók meðal annars þátt í Söngkeppni Sjónvarpsins í ár með lagið Ég Syng og er því með dágóða reynslu af söng og leik.

Hún gaf nýverið út lag sem nefnist Við Stingum Af og voru það félagarnir í StopWaitGo sem hjálpuðu henni með gerð lagsins. Það voru svo þeir Ólafur, Bjarki og Hörður hjá Novus sem stóðu sig eins og hetjur með gerð myndbandsins.