Justin Bieber - All That MattersJustin Bieber hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið fyrir slæma hegðun, en það virðist ekki ætla að draga úr vinsældum þessa kappa sem verður tuttugu ára á næsta ári.

Justin ákvað að gefa út nýtt lag á hverjum mánudegi í tíu vikur til að hita upp fyrir komu myndarinnar Believe 3D sem er væntanleg um jólin.
Myndbandið við lagið All That Matters er það nýjasta frá Justin sem kemur til með að gefa út sína fjórðu plötu á næsta ári.