Lorde - TeamÞað hefur eflaust komið mörgum á óvart að söngkonan Lorde frá Nýja-Sjálandi, sem færði okkur hið vinsæla lag Royals sé aðeins sautján ára gömul, en lagið komst á toppinn á Ameríska Billboard listanum yfir vinsælustu lögin.

Lorde gaf út sína fyrstu plötu, Pure Heroine í lok september síðastliðnum og hefur hún rokselst, en lagið Team er nýjasta smáskífan af plötunni.