Tinie Tempah - Heroes ásamt Laura MvulaBreski söngvarinn Tinie Tempah hefur heldur betur verið að gera það gott upp á síðkastið, en hann á eitt vinsælasta lag á landinu um þessar mundir Children Of The Sun, sem má finna á annari plötu kappans, Demostration sem kom út í lok síðasa árs.

Nú er komin út þriðja smáskífan af plötunni og nefnist lagið Heroes, en það er söngkonan Laura Mvula sem er með Tinie í laginu, en hún hefur einkum tileinkað sér lög í soul og jazz tónlistarstefnunum.