Duke Dumont - I Got U ásamt Jax JonesBreski pródúserinn Duke Dumont kom fyrst almennilega fram í sviðsljósið á síðasta ári þegar hann sendi frá sér sína fyrstu smáskífu Need U (100%), en lagið var eitt það vinsælasta í heiminum síðasta sumar.

Nú er Duke hinsvegar búinn að senda frá sér nýtt lag sem er önnur smáskífan af væntanlegri plötu hans sem kemur út síðar á þessu ári.
Myndbandið við lagið sem nefnist I Got U er afar sérstakt en það fjallar um mann sem fær sendan hjálm sem gerir honum kleift að gera nánast hvað sem er með hjálp sýndarveruleikans.