Chase & Status - Blk & Blu ásamt Ed ThomasBreska elektró dúóið Chase & Status þarf vart að kynna en þeir spiluðu meðal annars á Keflavík Music Festival tónlistarhátíðinni sem fór fram síðasta sumar.

Þeir félagarnir Saul Milton og Will Kennard hafa haft í nógu að snúast upp á síðkastið við að túra um heiminn og fylgja á eftir plötunni Brand New Machine sem kom út í október á síðasta ári, en lagið Blk & Blu er nýjasta smáskífan af plötunni.