Justin Timberlake - Not a Bad ThingAðdáendur Justin Timberlake á Íslandi bíða eflaust spenntir eftir komu hans til landsins, en hann mun koma til með að halda tónleika í Kórnum í Kópavogi í lok ágúst.

Timberlake sendi frá sér tvær plötur á síðasta ári og slógu þær báðar rækilega í gegn og nutu lögin mikilla vinsælda.
Nú hefur Justin hinsvegar sent frá sér þriðju smáskífuna af plötunni The 20/20 Experience – 2 of 2 sem kom út í september á síðasta ári, en hún hefur nú þegar selst í yfir 900,000 eintökum í Bandaríkjunum og segir það til um vinsældir kappans.