Beyoncé - PartitionHin 32 ára gamla Beyoncé sendi frá sér samnefnda plötu í desember síðastliðnum án þess að hafa auglýst komu hennar á nokkurn hátt, en lagið Drunk in Love sem var fyrsta smáskífan sem kom út af plötunni hefur verið eitt vinsælasta lagið hér á landi upp á síðkastið.

Nú er Beyoncé hinsvegar búin að senda frá sér nýtt lag sem nefnist Partition og voru það pródúserinn The Dream og þeir Justin Timberlake og Timbaland sem aðstoðuðu hana við gerð lagsins.