Iggy Azalea - Fancy ásamt Charli XCXSöngkonan og fyrirsætan Iggy Azalea er fædd og uppalin í 3000 manna bæjarfélagi í Ástralíu en tónlistarferill hennar hófst árið 2011 þegar hún flutti til Miami.

Iggy kemur til með að gefa út sína fyrstu plötu, The New Classic í apríl, en hún hefur verið að vinna að henni undanfarin tvö ár.
Lagið Fancy er nýjasta smáskífan af plötunni, og er myndbandið við lagið sérstakt að því leiti að innblásturinn í það er sóttur úr myndinni Clueless frá árinu 1995 með leikkonunni Alicia Silverstone í aðalhlutverki.