Beyonce - Pretty HurtsÚtlitsdýrkun er stórt vandamál í nútímasamfélagi, en það er aðal viðfangsefnið í textanum við nýjasta lag söngkonunnar Beyoncé Knowles, Pretty Hurts sem finna má á plötunni Beyoncé sem kom út í desember síðastliðnum, en í textanum segir meðal annars að það eina sem skipti máli sé að líta vel út, með vel greitt hár og klæðast flottum fötum.

Beyoncé birti fyrir nokkru stuttan bút úr myndbandinu við lagið og hlaut það strax mikla athygli, en því hefur nú verið lekið á netið í heild sinni.
Í myndbandinu leikur hún fegurðardrottningu sem býr við útlitsdýrkun og illa meðferð í fegurðarsamkeppni, en þar sést þar sem hún er metin eftir útliti og vexti, tekur megrunarpillur, fer í brúnkusprautun lokar sig af og upplifir mikla vanlíðan.

Tónlistargagnrýnendur eru á einu máli um að boðskapur lagsins geri það af einu besta lagi sem söngkonan hefur sent frá sér og með því sé hún að reyna að bæta ímynd kvenna til muna.