Michael Jackson - XscapePoppgoðsögnin Michael Jackson er einn af vinsælustu og virtustu tónlistarmönnum í heiminum í dag þrátt fyrir að hafa látist fimmtugur að aldri árið 2009.

Epic útgáfufyrirtækið sem er partur af Sony Music Entertainment, einu stærsta útgáfufyrirtæki í heimi tilkynnti nú á dögunum að ný plata væri væntanleg með Jackson, en platan sem er sú ellefta frá honum og sú önnur sem kemur út eftir andlát stjörnununnar nefnist Xscape, og inniheldur hefðbundna útgáfan átta lög og viðhafnarútgáfan alls 17 lög, en forpantanir á henni eru þegar hafnar hjá iTunes tónlistarveitunni.

Fyrsta smáskífan af plötunni heitir líkt og platan sjálf, Xscape, en platan sem er að mestu pródúseruð af Timbaland kemur út þann 9. maí næstkomandi.