Phillip Phillips - Raging FireHinn 23 ára gamli Bandaríski söngvari Phillip Phillips sló í gegn eftir að hafa unnið American Idol keppnina árið 2012, og sendi hann í kjölfarið frá sér lögin Home og Gone, Gone, Gone, sem má finna á fyrstu plötu hans, The World from the Side of the Moon sem kom út í lok árs 2012.

Nú er Phillip hinsvegar að leggja loka hönndina á aðra plötu sína, Behind the Light, sem kemur út í maí næstkomandi en fyrsta smáskífan af plötunni nefnist Ragin Fire, og vill Phillip meina að lagið fjalli um hversu mögnuð og áhrifarík ástin sé.