Mar - Twisted FiguresListamaðurinn Mar eða Grétar Mar Sigurðsson eins og hann heitir fullu nafni fæst við allt frá myndlist að tónlist og er nýjasta verkið hans örplatan (EP) Mellows sem kom út fyrr á þessu ári en Mar lagði upp með að lögin fjögur á plötunni væru öll í sitthvorri tónlistarstefnunni en myndu á endanum ná að tengjast saman.

Nú er komið út myndband við lagið Twisted Figures sem finna má á plötunni en við gerð myndbandsins sem er á listrænu nótunum  fékk Mar með sér til liðs danshöfundinn Emilíu Antonsdóttur sem samdi dansinn í myndbandinu en Mar sá sjálfur um leikstjórn.