Nicki Minaj - AnacondaSöngkonuna Onika Tanya Maraj eða Nicki Minaj eins og hún kallar sig þarf vart að kynna en hún er einn vinsælasti kvenkyns tónlistarmaðurinn í dag og kemur hún til með að gefa út plötuna The Pinkprint síðar á þessu ári en fyrsta smáskífan af plötunni, Pills N Potions hefur þegar verið að gera góða hluti.

Nú er komið út annað lag af plötunni og nefnist það Anaconda en lagið sem pródúserað er af Polow Da Don og Da Internz var upphaflega ætlað söngkonunni Missy Elliott árið 2012, en fyrir óvæntar ástæður var hætt við það og ákveðið að gefa það út með Nicki í staðin.