Kid Ink - Body Language ásamt Usher & TinasheBandaríski rapparinn Kid Ink kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2009 og sendi frá sér sína fyrstu plötu Up & Away árið 2012, en það var ekki fyrr en á síðasta ári sem hjólin fóru að snúast hjá honum að alvöru þegar hann skrifaði undir samning við RCA útgáfufyrirtækið sem er partur af Sony samsteypunni og gaf loks út sína aðra plötu í janúar síðastliðnum.

Kid vinnur nú hörðum höndum við að leggja loka hönd á þriðju plötu sína sem er væntanleg í byrjun næsta árs og er Body Language fyrsta lagið sem við fáum að heyra af plötunni en það eru Usher og hin 21 árs gamla Tinashe sem eru með honum í laginu.