Baauer - One Touch ásamt AlunaGeorgeMaðurinn sem kom Harlem Shake æðinu af stað fyrir um tveimur árum síðan, Harry Bauer Rodrigues eða bara Baauer  eins og hann kallar sig er hér mættur til leiks með nýtt lag ásamt krökkunum í AlunaGeorge.

Lagið sem nefnist One Touch er eitt af 85 lögum sem Baauer er tilbúinn með að gefa út, en hann verður eflaust búinn að sía listann eitthvað þegar þegar hans fyrsta plata kemur út á næsta ári.