Far East Movement - Level (Palm Trees) ásamt La Reda & Sha Sha JonesEftir gífurlega gott gengi plötunnar Dirty Bass sem kom út árið 2012 hófu strákarnir í Far East Movement vinnslu á nýrri plötu en ákváðu að gefa út örplötu (EP) í millitíðinni og hefur hún fengið nafnið KTown Riot og kemur hún út í lok mánaðarins.

Nýjasta lagið sem við fáum að heyra af plötunni nefnist Level (Palm Trees) og eru það þeir Brion og Nathan í La Reda og söngkonan Sha Sha Jones sem eru með Far East Movement í laginu, en þú getur hlaðið því frítt niður með því að smella á örina hægra megin á spilaranum hér fyrir neðan.