Conchita Wurst - HeroesSkeggjaða dragdrottningin Conchita Wurst kom sá og sigraði í Eurovision keppninni í ár sem fór fram í Danmörku með laginu Rise Like a Phoenix.

Wurst leggur nú loka hönd á fyrstu plötuna sína, sem kemur út á fyrsta fjórðungi næsta árs í gegnum Sony útgáfufyrirtækið en Heroes er nýjasta smáskífan sem við fáum að heyra af plötunni sem hefur þó ekki ennþá fengið nafn.