Nate Ruess - Nothing Without LoveHljómsveitina Fun. ættu flestir að kannast við en hún færði okkur meðal annars lögin We Are Young og Some Nights fyrir um þremur árum síðan.

Hljómsveitin ákvað að taka sér hlé og ákvað söngvari hljómsveitarinnar, Nate Ruess þá að snúa sér að sólóferli sínum og er lagið Nothing Without Love það fyrsta sem hann sendir frá sér en það má finna á væntanlegri plötu Ruess sem hefur þó ekki fengið útgáfudag.