P!nk - Just Give Me A Reason ásamt Nate RuessHin 33 ára gamla söngkona Alecia Beth Moore eða bara P!nk (Pink) eins og hún kallar sig sýndi okkur svo sannarlega hvað í hana er spunnið þegar hún sendi frá sér lagið Blow Me (One Last Kiss) síðasta sumar og naut það gífurlegra vinsælda.

Síðla árs 2012 haf hún út sjöttu plötuna sína The Truth About Love og er lagið Just Give Me A Reason þriðja smáskífan af þessari frábæru plötu, en við gerð lagsins fékk hún hann Nate Ruess í lið með sér en hann er þekktastur fyrir að vera söngvari hljómsveitarinnar Fun., og skapa þau í sameiningu gífurlega flottan dúett.