Justin Timberlake - MirrorsKyntröllið Justin Timberlake komst heldur betur í sviðsljósið þegar hann sendi frá sér lagið Suit and Tie fyrir um mánuði síðan en það var fyrsta lagið sem hann gaf út síðan árið 2006.

Justin hefur tekið sig til og sent frá sér aðra smáskífuna af plötunni The 20/20 Experience sem kemur út þann 15. mars næstkomandi, en lagið sem nefnist Mirrors er átta mínútur að lengd og vilja menn meina að það sé tileinkað konu Justin’s, Jessica Biel en þau giftu sig í október á síðasta ári.