Justin Timberlake - Suit and Tie ásamt Jay ZJustin Randall Timberlake eða bara Justin Timberlake eins og hann kallar sig er fjallmyndalegur leikari, viðskiptamaður og síðast en ekki síst söngvari.

Lítið hefur heyrst frá kappanum undanfarið en hann gaf síðast út plötu árið 2006 og naut hún mikilla vinsælda.

Justin tilkynnti fyrir skemmstu að hann væri að undirbúa endurkomu sína í tónlistarheiminn og að það væri m.a. væntanleg plata frá kappanum síðar á þessu ári en hún hefur fengið nafnið The 20/20 Experience og hefur fyrsta smáskífan fengið nafnið Suit and Tie, en það rapparinn Jay Z sem er með Justin í þessu frábæra lagi.