Willow Smith – Sugar And SpiceÞað má með sanni segja að systkinin Willow og Jaden hafi erft söng og leikhæfileika frá föður sínum, Will Smith, þrátt fyrir ungan aldur.

Hin 12 ára gamla Willow Smith sló heldur betur í gegn árið 2010 með laginu Whip My  Hair og markaði það upphaf af tónlistarferli hennar og naut hún gífurlegra vinsælda um allan heim og þótti það athyglisvert hversu ung hún væri.
Nýjasta lagið frá þessari rísandi stjörnu nefnist Sugar And Spice og fetar hún nýjar leiðir með þessu annars frábæra lagi.