will.i.am - Scream & Shout (Remix)Lagið Scream & Shout með þeim will.i.am og Britney Spears hefur verið með vinsælli lögum á útvarpsstöðvum hér á landi upp á síðkastkið en það má finna á plötunni #willpower sem kemur út þann 1. mars næstkomandi.

Söngvarinn knái sendi frá sér í dag myndband við svokallað remix eða endurgerð af laginu og fær hann ásamt Britney þá Hit Boy, Waka Flocka Flame, Lil Wayne og Diddy með sér í lið við gerð lagsins og verður hver og einn að dæma fyrir sig hvort útgáfan sé betri.