Mr. Belt & Wezol, Freejak - SomebodyÆskuvinirnir Bart Riem og Sam van Wees sem koma frá borginni Delft í Hollandi komu fyrst á sjónarsviðið árið 2013 þegar þeir ákváðu að búa til lag saman sem verkefni í skólanum þeirra og vildu þeir gera eitthvað meira úr því og úr varð dúóið Mr. Belt & Wezol.

Þeir fóru fljótlega að njóta vinsælda meðal almennings og hafa þegar gefið út nokkur lög, bæði eftir þá sjálfa en einnig remix af lögum eftir aðra, en nýjasta lagið frá félögunum nefnist Somebody To Love og notast þeir við viðlagið úr samnefndu lagi sem Jefferson Airplane gerði ódauðlegt árið 1967.