Plötusnúðurinn  Ólafur Geir Jónsson eða Dj Óli Geir eins og hann er kallaður kom víða við á árinu sem var að líða hann stóð fyrir partýum út um allt land og sá um að flytja inn erlenda plötusnúða á borð við Bodybangers. Óli var einnig með þátt á Flass á föstudögum sem hét því skemmtilega nafni Music Matters og spilaði hann það heitasta í danstónlistinni hverju sinni.

Óli Geir hefur tekið saman öll bestu lögin frá árinu 2011 og sett þau saman i eina syrpu sem er tveir klukkutímar að lengd og ætti sannarlega að geta fengið þig til að dansa. Þú getur hlaðið syrpunni niður frítt með því að smella á litlu örina á spilaranum.