Sean Kingston er mættur til leiks eftir langa fjarveru með glænýtt lag ásamt rapparanum T.I. en það heitir Back 2 Life.
Þess má til gamans geta að kappinn ætlar að gefa út nýja plötu í júlí sem hefur fengið nafnið Back 2 Life eins og nýjasta lagið frá honum. Gestirnir á plötunni eru ekki af verri endanum en þar má nefna Rihönnu, T-Pain, Cee Lo Green, Kanye West, Akon og marga fleiri.