Hér er á ferðinni sjóðheitt sumarlag frá félögunum Bryan Wilson og Sebastian Crayn en þeir koma báðir frá Portúgal og hafa verið starfandi saman síðan 2010 en þeir fá innblástur frá tónlistarmönnum á borð við Akon og Bob Sinclar.

Lagið heitir Até a Noite Parar og þýðir það á íslensku Þar Til Nóttin Endar, en lagið hefur verið að gera ansi góða hluti um allan heim upp á síðkastið.