Christopher Francis Ocean hefur verið að gera það ansi gott upp á síðkastið með lögunum af fyrstu plötunni sinni, Channel Orange en hún kom út í júlí síðastliðnum og inniheldur hún sautján lög.

Hér er Frank Ocean eins og hann kallar sig mættur með splunkunýtt myndband við nýjustu smáskífuna af plötunni sinni en lagið ber nafnið Pyramids.