Strákarnir í Breska bandinu One Direction sendu frá sér fyrir um mánuði síðan ansi fjörugt lag sem nefnist Live While We’re Young en það er þegar orðið vinsælt um heim allan.

Hér eru þeir hinsvegar mættir með nýtt lag sem heitir Little Things en það er þó í rólegri kantinum og er það með ansi fallegum texta.

Bæði lögin má finna á væntanlegri plötu strákanna, Take Me Home en hún kemur út þann 12. nóvember næstkomandi.