Hann er maður falsettanna og er með rödd sem nær fjórum áttunum, hann heitir Mika og er 29 ára söngvari sem kemur frá Bretlandi.

Hann sendi frá sér sína þriðju plötu sem nefnist The Origin of Love þann 16. september og hefur hún fengið heldur betur góðar móttökur, en hér er á ferðinni glænýtt myndband við nýjustu smáskífunna af plötunni, Underwater.

Það ættu flestir að hafa tekið eftir því að Mika er á leiðinni til landsins og spilar hann ásamt fríðu föruneiti í Hörpu þann 18. desember næstkomandi, en aðstandendur tónleikanna lofa mikilli skemmtun.