Tramar Dillard eða Flo Rida eins og hann kallar sig er maðurinn sem færði okkur lagið I Cry sem hefur náð heldur betur miklum vinsældum upp á síðkastið um heim allan.

Hér er Flo mættur með glænýtt myndband við nýjustu smáskífuna af plötunni Wild Ones sem hann sendi frá sér í sumar en lagið heitir Let It Roll.