The Lonely Island - YOLO ásamt Adam Levine og Kendrick LamarSpéfuglarnir í grínhópnum The Lonely Island eru kannski ekki bestu söngvarar í heimi en lögin þeirra hafa þó notið mikilla vinsælda og má þar nefna I Just Had Sex sem var með vinsælli lögum ársins 2011, en textarnir þeirra eiga það sameiginlegt að vekja umtalsverða athygli

Þremenningarnir tilkynntu í dag að ný plata væri á leiðinni frá þeim og kæmi hún út síðar á þessu ári, en þeir sendu jafnframt frá sér fyrsta lagið af plötunni sem ber nafnið YOLO en það er dregið af slangrinu “You Only Live Once“ og eru það söngvari hljómsveitarinnar Maroon 5, Adam Levine og rapparinn Kendrick Lamar sem eru með The Lonely Island  í þessu grípandi lagi.