Chris Brown - As Your Friend ásamt AfrojackHinn 23 ára gamla Chris Brown þarf vart að kynna en hann er með vinsælli söngvurum í heiminum í dag og kemur hann meðal annars til með að gefa út nýja plötu síðar á þessu ári, en hún kemur til með að bera nafnið Carpe Diem eða „gríptu daginn“ og er orðatiltækið upprunnið úr latínu.

Það nýjasta frá Chris Brown er samvinnuverkefni með hollenska plötusnúðinum og pródúsernum Afrojack, en lagið sem heitir As Your Friend kemur eflaust til með að gleðja dansþyrsta Íslendinga.