Fall Out Boy - My Songs Know What You Did In The Dark (Light Em Up)Hljómsveitin Fall Out Boy var stofnuð árið 2001 og náði hún gífurlegum vinsældum með lögum á borð við I Don’t Care og Dance, Dance en í nóvember 2009 tilkynntu meðlimir hljómsveitarinnar að þei væru óvissir með framtíð hennar og ákváðu því að slíta samstarfi sínu, aðdáenum strákanna til mikils ama.

Á síðasta ári braust hinsvegar sá orðrómur út að hljómsveitin hefði komið aftur saman og væri að vinna að nýrri plötu, en fyrrum meðlimir hljómsveitarinnar vísuðu því hinsvegar á bug og þvertóku fyrir það að eitthvað samstarf væri í vændum.

Í gær sendu fjórmenningarnir hinsvegar frá sér tilkynningu að Fall Out Boy væru teknir aftur til starfa þá eftir um fjögurra ára pásu og gáfu þeir samdægurs út nýtt lag en það er fyrsta smáskífan af plötunni Save Rock and Roll sem félagarnir Patrick, Pete, Joe og Andy koma til með að senda frá sér síðar á þessu ári.