will.i.am - #thatPOWER ásamt Justin BieberÞriðja lagið sem söngvarinn William James Adams eða will.i.am eins og hann kallar sig sendir frá sér af væntanlegri plötu sinni #willpower, en hún kemur út eftir mánuð eða þann 22. apríl næstkomandi.

Lagið nefnist #thatPOWER og er það enginn annar  Justin Bieber sem þenur raddböndin með William í laginu sem hefur verið valin aðalsmáskífa plötunnar.

Þess má til gamans geta að will.i.am tilkynnti nýverið að The Black Eyed Peas væru saman komin í gerð nýrrar plötu, en hann er eins og eflaust flestir ættu að vita aðalsöngvari hljómsveitarinnar.