Fall Out Boy - The PhoenixStrákarnir í Fall Out Boy halda ótrauðir áfram eftir að þeir tilkynntu óvænta endurkomu sína í byrjun febrúar og gáfu út lagið My Songs Know What You Did In The Dark sem hefur verið að gera góða hluti upp á síðkastið.

Það eru aðeins þrjár vikur í að fimmta plata strákanna, Save Rock and Roll komi út og hafa þeir sent frá sér aðra smáskífuna af plötunni en lagið sem nefnist The Phoenix gefur okkur ansi góða sýn á plötuna og er það alveg ljóst að ímynd Fall Out Boy hefur ekkert breyst þrátt fyrir um fjögurra ára fjarveru.