Rudimental - Right Here ásamt FoxesBretarnir í Rudimental með splunkunýtt myndband við fjórðu smáskífuna af plötunni Home sem kom út í apríl.  Myndbandið við lagið sem nefnist Right Here var tekið upp í tígrisdýramusteri í Taílandi, en eins og flestir ættu að vita komu Rudimental fram á Keflavík Music Festival tónlistarhátíðinni sem fór fram í Keflavík í byrjun júní síðastliðnum.