Justin Timberlake - Take Back The NightÞað eru ekki margir sem ná að afreka það að senda frá sér tvær plötur á sama árinu, en það virðist ekki vera neitt mál fyrir hinn 32 ára gamla söngvara Justin Timberlake.

Fjórða platan hans, The 20/20 Experience: 2 of 2 er væntanleg í september, en eins og eflaust flestir ættu að vita gaf hann út plötu í mars og má finna á henni lög á borð við Suit and Tie og Mirrors, en þau hafa verið að gera gífurlega góða hluti upp á síðkastið.

Fyrsta smáskífan af nýju plötunni nefnist Take Back The Night, og einkennist hún af disco stíl sem virðis vera að koma aftur inn að einhverju leiti.